Nökkvi Gunnarsson
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Nökkvi Gunnarsson – 1. ágúst 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Nökkvi Gunnarsson. Nökkvi er fæddur 1. ágúst 1976 og því 39 ára í dag. Nökkvi er í Nesklúbbnum, er útskrifaður PGA golfkennari klúbbsins og Íslandsmeistari 35+, árið 2012. Nökkvi sigraði þetta ár, þ.e. 2012 í mörgum opnum mótum, m.a. BYKO vormótinu á Nesinu, 1. maí mótinu á Hellu og 60 ára afmælismóti GHR. Eins tók Nökkvi þátt í mótum erlendis 2012; t.a.m. varð hann í 18. sæti ásamt bróður sínum, Steini Baugi, á sterku móti áhugamanna í Belgíu sem fram fór á Royal Waterloo golfvellinum, þ.e. 4Ball Club Trophy, í apríl 2012.

Árið 2013 og  2014 varði Nökkvi titil sinn í BYKO vomótinu á Nesinu og 2013 spilaði Nökkvi m.a. Nesvöll á glæsilegum 66 höggum á Úrvals-Útsýnarmótinu.

Árið 2014, var eins Nökkvi á besta skorinu á Þjóðahátíðardagsmótinu og tekur nú á mánudaginn n.k. þátt í Einvíginu á Nesinu.

Sjá má viðtal Golf 1 við Nökkva með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

1-noekkvi

Nökkvi Gunnarsson (39 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Guðlaugur Gíslason, f. 1. ágúst 1908 – d. 6. mars 1992, forystumaður GV um árabil, faðir Jakobínu Guðlaugsdóttir og Jón Hauks Guðlaugssonar, kylfinga með meiru; Lloyd Mangrum, f. 1. ágúst 1914 – d. 17. nóvember 1973; Baldur Baldursson, 1. ágúst 1951 (64 ára); Mússa Faulk, 1. ágúst 1968 (47 ára); Jón Ingi Jóhannesson, 1. ágúst 1970 (45 ára); Margrét Eir, 1. ágúst 1972 (43 ára); Guðmundur Liljar Pálsson, 1. ágúst 1973 (42 árs);  Thorvaldsen Bar, 1. ágúst 1977 (38 ára); Ágúst Bernhardsson Linn, 1. ágúst 1979 (36 ára); Prjóna Brjálæði, 1. ágúst 1981 (34 ára)Bergur Ve, 1. ágúst 1983 (32 ára) Kristoffer Broberg, 1. ágúst 1986 (29 ára); Lucas Lee, 1. ágúst 1987 (28 ára – spilar á bandaríska PGA Tour);  Aðalbjörgönnur Aðalbjörg, 1. ágúst 1997 (18 ára) …… og …….  Svava Frá Strandbergi

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið!

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!