Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Nelly Korda – 28. júlí 2021

Það er Nelly Korda, sem er afmæliskylfingur dagsins. Nelly Korda er fædd 28. júlí 1998 í Bradenton, Flórída og er því 23 ára í dag. Hún hefir átt töfrum líkast golfár, er búin að sigra á fyrsta risamóti sínu, Women´s PGA Championship fyrir mánuði síðan (27. júní 2021) og eins sigraði hún vikunni þar áður í Mejer Classic og á Gainbridge LPGA at Boca Rio, í 28. febrúar í ár.  Alls eru atvinnumannssigrar hennar orðnir 8, þar af 6 á LPGA og hafa 3 fyrrgreindir sigrarnir unnist á þessu ári.

Nelly er dóttir tennisleikaranna Reginu og Petr Korda og hún á tvö systkini golfdrottninguna Jessicu Korda og bróðurinn og tennisstirnið Sebastian. Frá árinu 2019 hefir Nelly verið á föstu með kanadíska NHL leikmanninn Andreas Athanasiou, sem spilar íshokkí með the Los Angeles Kings.

Nelly og kærastinn Andreas Athanasiou

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hinrik Hilmarsson, GR, 28. júlí 1958 (hefði orðið 63 ára); Marta Guðjónsdóttir, 28. júlí 1959 (62 ára); Árný Lilja Árnadóttir, GSS, 28. júlí 1970 (51 árs) Steven Craig Alker, 28. júlí 1971 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Þórdís Lilja Árnadóttir, 28. júlí 1973 (48 ára); Amy Yang, 28. júlí 1989 (32 ára); Moriya Jatanugarn, 28. júlí 1994 (26 árs); Nelly Korda, 28. júlí 1998 (22 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is