Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mikko Korhonen – 23. júlí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er finnski kylfingurinn Mikko Korhonen. Mikko er fæddur 23. júlí 1980 og er því 35 ára í dag. Mikko varð m.a. nr. 1 í Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfvellinum 2014 og var fyrsti finnski kylfingurinn til þess að ná þeim árangri.  Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Korhonen með því að SMELLA HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Ken Green, 23. júlí 1958 (57 ára); Craig Barlow, 23. júlí 1972 (43 ára); Thomas Brent „Boo“ Weekley, 23. júlí 1973 (42 ára); Mikko Korhonen, 23. júlí 1980 (34 ára); Kiradech Aphibarnrat, 23. júlí 1989 (26 ára); Harris English, 23. júlí 1989 (26 ára) ….. og ….. Malín Brand.
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is