Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Michael Jackson – 29. ágúst 2018

Hver hefði trúað því að popgoðsögnin Michael Jackson (oft kallaður konungur popsins) kynni eitthvað fyrir sér í golfi? Svo er að sjá a.m.k. ef eitthvað er að marka meðfylgjandi myndskeið SMELLIÐ HÉR: 

Eins var Jackson alltaf í golfhönskum, sem settir voru semalíusteinum og hefir sá dýrasti sem stjarnan hélt mikið upp á selst fyrir litlar  $350,000 (u.þ.b 35 milljónir íslenskra króna) – Já jafnvel golfhanskar geta orðið verðmætir með tímanum!!!

Það er Michael Jackson sem er afmæliskylfingur dagsins hér á Golf 1, en hann hefði orðið 60 ára í dag hefði hann lifað.

Michael Joseph Jackson var fæddur 29. ágúst 1958 og dó s.s. flestir aðdáendur hans vita 25. júní 2009, aðeins 50 ára að aldri. Heil 9 ár frá andláti hans og það er eins og það hefði gerst í gær!!! Tíminn líður hratt!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Albert Þorkelsson, 29. ágúst 1922-12. febrúar 2008 (Hefði orðið 96 ára í dag); Dóra Eiríksdóttir, 29. ágúst 1952 (66 ára); Sigríður Anna Kristinsdóttir, 29. ágúst 1957 (61 árs); Jónína Kristjánsdóttir, GK, 29. ágúst 1963 (55 ára); Carl Pettersson, 29. ágúst 1977 (41 árs); Anton Rafn Ásmundsson; 29. ágúst 1979 (39 ára); Ég Er Akureyringur, 29. ágúst 1985 (33 ára) Peter Uihlein, 29. ágúst 1989 (29 ára); Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 1999 (19 ára)….. og ….. Julia Lekva

Golf 1 óskar þeim, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is