Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Michael Hoey – 13. febrúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er kylfingurinn Michael Hoey, en hann fæddist í Ballymoney á Norður-Írlandi, 13. febrúar 1979 og er því 37 ára í dag. Hoey gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 14 árum, 2002. Hoey býr í Templepatrick, á Norður-Írlandi og er félagi í Galgorm Estate golfklúbbnum. Hann er kvæntur eiginkonu sinni Bev (frá árinu 2011) og þau eiga saman Erin (f. 2013).

Hoey hefir sigrað 8 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 5 sinnum á Evrópumótaröðinni og 4 sinnum á Áskorendamótaröðinni (eitt mót var sameiginlegt mót Evrópumótaraðarinnar og Áskorendamótaraðarinnar).

Eitt virtasta mót sem Hoey hefir sigrað til dagsins í dag er Alfred Dunhill Links Championship, en það mót vann hann árið 2011. Það ár er líka það besta á ferli hans, en það ár vann hann tvívegis (fyrra mótið sem hann vann var 22. maí 2011 Madeira Islands Open).

Sem stendur er Hoey nr. 227 á heimslistanum. Sjá má allt nánar um Hoey á vefsíðu hans með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Patty Berg, 13. febrúar 1918-d. 10. september 2006; Ágúst Jensson,  13. febrúar 1977 (39 ára);  Roope Kakko, 13. febrúar 1982 (34 ára) …. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is