Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 25. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mianne Bagger – 25. desember 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Mianne Bagger. Bagger er fædd 25. desember 1966 í Kaupmannahöfn og á því 50 ára stórafmæli í dag. Mianne byrjaði í golfi 8 ára og 12 ára fluttist hún með fjölskyldu sinni til Ástralíu. Hún spilaði fyrst sem áhugamaður þar og gerðist atvinnumaður í golfi 2004. Það ár varð hún fyrsta transan til þess að spila í atvinnumannamóti þegar hún tók þátt í Women’s Australian Open, og sama ár varð hún einnig fyrsta transan til að spila á LET (þ.e. Ladies European Tour) m.ö.o Evrópumótaröð kvenna.

Aðrir frægir kylfingar eru: Adalsteinn Teitsson, 25. desember 1961 (55 ára); Nicholas Thompson, 25. desember 1982 (33 ára ); Jean Françoise Luquin, 25. desember 1978 (38 ára); Petur Kristinn Gudmarsson, 25. desember 1978 (38 ára)  ….. og ….. Valgerður Halldórsdóttir

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is