Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2015 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mayumi Hirase —- 30. október 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Mayumi Hirase frá Japan (jap: 平瀬真由美). Hún fæddist í dag fyrir 46 árum, þ.e. 30. október 1969, í Kumamoto, í Japan. Mayumi er atvinnumaður í golfi, sem m.a. hefir sigrað 18 sinnum á japanska LPGA. Sigra sína í Japan vann hún á árunum 1989-2000. Mayumi hefir jafnframt sigrað 1 sinni á bandaríska LPGA; það var 1996 á Toray Japan Queens Cup.

Mayumi Hirase 1995

Mayumi Hirase 1995

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sesselja Björnsdóttir (58 ára); Guðjón Smári Guðmundsson (54 ára); Anton Þór, 30. október 1976 (39 ára); … og …  Samskipti Ehf

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is