Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2012 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Maurizio Veloccia – 14. febrúar 2012

Það er ítalski golfkennarinn og flugmaðurinn Maurizio Veloccia sem er afmæliskylfingur dagsins. Maurizio fæddist 14. febrúar 1968 í Róm og er því 44 ára í dag. Maurizio er búinn að spila golf frá árinu 1996, en hann byrjaði af tilviljun. Í dag er hann með 0 í forgjöf og kennir við einn virtasta golfklúbb í Róm. Hann spilar m.a. golf með fv. landsliðsmarkverði Ítala í fótbolta, Dino Zoff, sem er búinn að spila golf í 4-5 ár. Þetta og annað skemmtilegt kemur fram í viðtali við Maurizio, sem birtist á Golf 1 seinna í dag (á ensku svo afmæliskylfingur dagsins geti lesið það!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Mickey Wright  14. febrúar 1935 (77 ára);  Bruce Patton Summerhayes, 14. febrúar 1944 (68 ára)… og

F. 14. febrúar 1950.

F. 14. febrúar 1958

Golf 1 óskar afmælikylfingnum innilega til hamingju með afmælið (Tanti auguri!) og eins öðrum kylfingum, sem eiga afmæli í dag.

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is