Martin Kaymer Afmæliskylfingur dagsins: Martin Kaymer —— 28. desember 2015
Það er nr. 27 á heimslistanum, þýski PGA risamótstitilshafinn Martin Kaymer, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kaymer fæddist 28. desember 1984 í Düsseldorf í Þýskalandi og á því 31 árs afmæli í dag! Hmm… árið í ár hefir ekki verið Kaymer nógu gott – hann hefir m.a. hrunið niður heimslistann var í 12. sæti fyrir ári síðan sem sé fall um 15 sæti og vonandi að 2016 reynist Kaymer betur. Hins vegar mætti nefna að í árslok 2013 var Kaymer í 39. sæti heimslistans þannig að oddatöluárin virðast reynast honum illa.
Martin Kaymer átti hins vegar glæsiár, árið 2014 og margt sem gerðist það ár í lífi hans. Eftirminnilegur er stórglæsilegur sigur hans á Opna bandaríska risamótinu, þar sem hann átti 8 högg á næsta keppanda. Eins sigraði hann á Players mótinu, sem oft er nefnt 5. risamótið.
Meginpart ársins 2014 var Martin Kaymer á lausu – lék m.a. í Pro-Am mótum með ýmsum fegurðardísum í von um að finna þá einu réttu og nægir þar að nefna leik hans við rússneska kylfinginn og fegurðardísina Maríu Verchenovu
Eftir sigurinn á Opna bandaríska voru ýmsir að spá í hvort Kaymer væri að draga sig saman við löndu sína, fegurðardísina og stórkylfinginn Söndru Gal, en frá upphafi gáfu bæði frá sér að þau væru bara góðir vinir. Sandra hljóp m.a. á völlinn eftir sigur Kaymer á stórmótinu og skvetti úr vatnsflösku á hann eins og gert er við sigurvegara á kvennamótum.

Martin Kaymer fær á sig vatnsgusu frá löndu sinni og „Sam-Düsseldorfara“ Söndru Gal – eftir sigurinn á Opna bandaríska 15. júní 2014
Það var svo ekki fyrr en í lok nóvember á þessu ári að Kaymer lét frá sér fara fréttatilkynningu þar sem sagði að hann væri byrjaður með frænku liðsfélaga síns í Ryder bikar keppninni Stephen Gallacher, þ.e. Kristy. Sjá frétt Golf 1 með því að SMELLA HÉR:
Kaymer heldur heimili bæði í Mettmann í Þýskalandi og í Scottsdale, Arizona og æfir í eyðimörkinni þar – en við þannig aðstæður virðist hann kunna vel við sig s.s. 3 sigrar hans á Evrópumótaröðinni í Abu Dhabi bera vitni um. Kaymer gerðist atvinnumaður 2005 og hefir á þeim tíma sigrað 22 sinnum, þar af 11 sinnum á Evrópumótaröðinni. Fræknasti sigrar hans til þessa kom eflaust í ár, 2014, á Opna bandaríska og eins þegar hann sigraði á PGA Championship risamótinu, árið 2010. Frá þeim tíma hefir Kaymer átt fastasæti í sigurliðum Evrópu í Rydernum þ.e. árið 2010 og síðan var hann einnig í undraliðinu evrópska í Rydernum í Medinah, átti sigurpútt liðsins þar.
Afmæliskylfingurinn okkar vann það einstaka afrek eitt sinn að spila á 59 höggum á Habsberg Classic, þ.e. 22. júní 2006 meðan hann spilaði enn á EDP túrnum. Hér má sjá skorkort Martin Kaymer á frábæra 59 högga hring hans, upp á -13 undir pari, en það eru ekki margir kylfingar, sem hafa „breakað“ 60 úti á golfvelli og hvað þá í móti eins og Kaymer gerði:
Hola 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Út 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Inn Samt.
Par 4 3 4 5 4 4 4 3 5 36 4 5 3 4 4 4 3 5 4 36 72
Skor 4 4 3 4 3 3 4 2 4 31 3 3 2 4 3 3 2 5 3 28 59
Loks má hér sjá myndskeið með fallegri golfsveiflu afmæliskylfingsins Kaymers: MARTIN KAYMER Í SVEIFLU
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Peggy Wilson, 28. desember 1934 (81 árs); Hubert Myatt Green, 28. desember 1946 (69 ára); Sigríður Snorradóttir (55 ára); ….. og ……
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
