Margrét Sigmundsdóttir, GK.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2012 | 11:00

Afmæliskylfingur dagsins: Margrét Sigmundsdóttir – 8. apríl 2012

Það er Margrét Sigmundsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Margrét er fædd 8. apríl 1964. Hún er virk í félagsstarfi m.a. í kvennanefnd Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.

Margrét hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum með góðum árangri t.a.m. Art Deco 2011, þar sem hún var meðal efstu á 31 punkti hún var með 28 pkt. í Nurse Open 2011, en 9. júní 2006 sigraði hún það mót, sem þá var haldið á Bakkakotsvelli. Eins varð  Margrét fyrst kvenna til þess að vinna Rauða Jakkann eftirsótta á Haukamótinu í ágúst 2009, en metþátttaka var í mótinu eða um 119 keppendur. Margrét varð í 1. sæti í punktakeppninni með 42 glæsilega punkta.

Margrét er gift Helga Ásgeir Harðarsyni.

Komast má af Facebook síðu afmæliskylfingsins hér fyrir neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jim Barnes, f. 8. apríl 1886; Dugan „Doog“ Aycock, 8. apríl 1908;  Norman Joseph Ogilvie, 8. apríl 1974 (38 ára);  Gordon Sherry, 8. april 1974 (38 ára)  … og …
  • Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

    Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is