Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2014 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Margeir Ingi Rúnarsson – 10. júlí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Margeir Ingi Rúnarsson. Margeir Ingi er fæddur 10. júlí 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Margeir Ingi er í Golfklúbbnum Vestarr á Grundarfirði og er góður kylfingur. Hann varð m.a. klúbbmeistari GMS 2012 og varð í 2. sæti á meistaramótinu, sem hanntók þátt í 2013!

Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan…

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Murray Irwin „Moe“ Norman, f. 10. júlí 1929 –  d. 4. september 2004 (hefði orðið 85 ára í dag!;   Scott Michael McCarron, 10. júlí 1965 (49 ára)

….. og ……

 

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is