Magnús Birgisson, golfkennari hjá MP Academy í Oddinum. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Magnús Birgisson – 21. júlí 2023

Einn besti og ástsælasti golfkennari landsins, Magnús Birgisson, á afmæli í dag en hann er fæddur 21. júlí 1959 og því 64 ára.

Magnús er flestum kylfingum landsins að góðu kunnur, m.a vegna golfkennarastarfa sinna á Costa Ballena á Spáni (þar sem hann kennir golf í hópi einvala liðs golfkennara, þ.e. ásamt Ragnhildi Sigurðardóttur og Herði Arnarsyni )

Það er kunnara en frá þurfi að segja að Magnús kemur úr stórri golffjölskyldu en allir í kringum hann, eiginkonan, synir, systur, móðir, frænkur og frændur eru í golfi. Magnús er kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur, eiganda golfvörufyrirtækisins hissa.is, en á boðstólum fyrirtækisins eru ýmsar frábærar vörur fyrir golfara m.a. birdiepelar, flatarmerki, flatargaflar, tí, golfkúluvarasalvar, golfhandklæði og síðast en ekki síst SeeMore pútterar en sjá má úrvalið með því að smella á bláa auglýsingu hér á Golf1.is. Eins má skoða golfvöruúrvalið með því að fara hér inn á www.hissa.is Hissa.is flytur einnig inn hinn vinsæla SNAG útbúnað fyrir yngstu kylfinganna, sem Magnús hefir verið duglegur að kynna!

Magnús hefir látið sig útgáfumál á golfbókum varða, gaf m.a. ásamt Jóni H. Karlssyni, golfkennara, út kennsluleiðbeiningar í skólagolfi.

Af afrekum Magnúsar í golfíþróttinni mætti nefna að hann varð Norðurlandsmeistari 1979 og meistari GA 1983.

Magnús er drengjameistari Íslands 1973-1974 og piltameistari Íslands 1978. Magnús var í sveit Íslands á EM unglinga 1978-1979. Hann kenndi m.a um langt árabil hjá GKG 1994-2001 og hjá GO frá 2002. Eins hefir hann verið golfkennari um skeið hjá Golfklúbbnum Keili, Golfklúbbnum Oddi og nú Golfklúbbi Borgarness. Magnús lauk golfkennarnámi við PGA-golfskólann í Svíþjóð árið 2000.

Af öðrum íþróttum sem Magnús hefir tekið þátt í mætti nefna handbolta, en Magnús spilaði handbolta með meistaraflokki KA í handknattleik 1978-1983.

Magnús á 3 syni: Sindra, Pétur og Birgi Björn.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru : Jerry McGee f. 21. júlí 1943 (80 ára MERKISAFMÆLI!!!); Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 21. júlí 1959 (64 ára); Jóna Hrönn Bolladóttir 21. júlí 1964 (59 ára); Paul Casey f. 21. júlí 1977 (46 árs) og Valería Ochoa f. 21. júlí 1979 (44 ára) og Sindri Freyr Guðjónsson 21. júlí 1994 (29 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Í aðalmyndaglugga: Magnús Birgisson. Mynd: Golf 1