Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lúðvík Geirsson – 21. apríl 2021

Afmæliskylfingur dagsins er Lúðvík Geirsson, fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hann er fæddur 21. apríl 1959 og því 62 áraafmæli í dag. Lúðvík er í Golfklúbbnum Keili og hefir spilað golf frá því hann var smástrákur. Sem strákur átti hann (og á eflaust enn) fínt golfsett, sem heill hópur af frábærum kylfingum naut góðs af þegar þeir voru að stíga sín fyrstu spor í golfinu, m.a Þórdís Geirs, margfaldur Íslandsmeistari, systir hans, sem laumaðist í settið hjá eldri bróður sínum, þegar hún var að byrja.

Lúðvík er kvæntur Hönnu Björk Lárusdóttur og á 3 syni: Lárus, f. 1984, Brynjar Hans f. 1989 og Guðlaug Bjarka f. 1996.

Komast má á Facebooksíðu afmæliskylfingsins hér til þess að óska honum til hamingju:

Lúðvík Geirsson

Lúðvík Geirsson – 62 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Karen Dale Lundqvist Eggeling 21. apríl 1954 (67 ára);  Michael Jonzon, 21. apríl 1972 (49 ára); Gassi Ólafsson, 21. apríl 1977 (44 ára); Róbert Þór Guðmundsson, lögreglumaður, 21. apríl 1980 (41 árs);  Virada Nirapathpongporn, 21. apríl 1982 (39 ára); Holmar Freyr Christiansson, 21. apríl 1983 (38 ára); Beatriz Recari, 21. apríl 1987 (34 árs); Hafliði Már Brynjarsson, 21. apríl 1993 (28 ára);  Bogi Ísak Bogason, GR , 21. apríl 1995 (26 ára) … og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is