Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Louise Parks ——– 26. nóvember 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Louise Bruce Parks. Louise Parks fæddist 26. nóvember 1953 í Toronto, Kanada og hefði því orðið 65 ára í dag en hún lést fyrir 3 árum, 23. janúar 2015 úr krabbameini.

Louise bjó í San Diego og var vel þekkt meðal kylfinga á San Diego svæðinu. Hún var golfkennari í meir en 3 ártugi og sumir segja hana hafa verið svo miklu meira en golfkennara, meira lífskennara, en hún var einstaklega vel liðin vegna hlýrrar og góðrar nærveru.

Parks var á LPGA árin eftir 1972 eftir frábæran áhugamannsferil. Árin 1968 og 1970 var hún Junior World Champion og hún varð í 1. sæti 1970 á National Juniors og tilnefnd kylfingur ársins í San Diego árin 1968, 1970 og 1971.

Louise Parks lauk námi í Grossmont College.

Golf var af Bruce-ættinni en amma hennar var Margaret McGillvary Bruce, sem sigraði m.a. á Scottish Women’s Amateur Championship, árið 1924.

Parks kenndi í  San Diego Golf Academy í yfir 10 ár en varð síðan golfþjálfari í bandaríska háskólgolfinu, þar sem hún þjálfaði bæði kven- og karlalið Cuyamaca College frá árinu 2000.

Á ferli sínum á LPGA vann Parks sér inn $106,299 og einn besti árangur hennar þar var 6. sætið á  U.S. Women’s Open risamótinu árið 1980. Á því ári giftist hún Richard Parks og þau hjón áttu tvö börn, Elizabeth og Nelson.
Louise Parks á einnig tvær systur Patricia Watts og Arlene Gross, og einn bróður, Ian Bruce.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: John Samuel Inman, 26. nóvember 1962 (56 árs); Vince Covello, 26. nóvember 1982 (Spilar á PGA Tour – 36 ára); Christopher James (Chris) Wood; 26. nóvember 1987 (31 árs)

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is