Kristófer Karl Karlsson
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristófer Karl Karlsson – 17. september 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Kristófer Karl Karlsson, afrekskylfingur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar (GM) og Íslandsmeistari 2018 í holukeppni í flokki 17-18 ára pilta. Kristófer Karl er fæddur 17. september 2001 og á því 21 árs afmæli í dag.

Kristófer Karl var valinn efnilegastur GKJ-ingurinn um þetta leyti fyrir 9 árum, 2012 (þá 11 ára) og hann hefir svo sannarlega staðið undir því. Það ár (2012) spilaði Kristófer Karl á Áskorendamótaröði Arion banka og þar sigraði hann í 1. og 4. mótinu í strákaflokki.

Kristófer Karl sigraði eftirminnilega á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2014, sem fram fór á Korpunni. Hann átti m.a. stórglæsilegan hring upp á 4 undir pari, 68 högg!!! Þetta var fyrsti sigur Kristófer Karls á Íslandsbankamótaröðinni.

Í Korpunni setti Kristófer Karl jafnframt vallarmet af bláum teigum, með 4 höggum undir pari (og það 12 ára!!!) – þetta var í fyrsta sinn sem hann spilaði undir pari og hann gerði það með flottum hætti fékk 4 fugla og 14 pör þ.e. skilaði „hreinu“ skollalausu skorkorti!!!

Árið 2020 varð Kristófer Karl klúbbmeistari GM. Hann var jafnframt valinn íþróttakarl Mosfellsbæjar og kylfingur ársins hjá GM.

Í fyrra, 2021, sem og í ár hefir Kristófer Karl spilað á „Mótaröð þeirra bestu“ og í ár varð Kristófer aftur klúbbmeistari karla í GM!

Frábær kylfingur á ferð þar sem Kristófer Karl er!!!

Komast má á facebook síðu Kristófer Karls til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Kristófer Karl og Nína Björk Geirsdóttir klúbbmeistarar GM 2022

Kristófer Karl Karlasson – Innilega til hamingju með 21 árs afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Torakichi Nakamura (中村 寅吉 Nakamura Torakichi, 17. september 1915 – 11. feb 2008); Mary Lou Daniel Crocker 17. september 1944 (78 ára); Pala Ofeigsdottir 17 september 1951 (71 árs), Ragnhildur Pála, 17. september 1951 (71 árs;) Scott William Simpson, 17. september 1955 (67 ára); Craig A. Spence, 17. september 1974 (48 ára); Jennifer Rosales, frá Filipseyjum 17. september 1978 (44 árs), Ryo Ishikawa (japanska: 石川 遼) 17. september 1991 (31 árs); Byong-Hun An, (frá S-Kóreu) 17. september 1991 (31 árs); Róbert Theodórsson, 17. september 1995 (27 ára); SH Kim, 17. september 1998 (24 ára); Ingibjorg Olof Vilhjalmsdottir ….. og …..

Golf 1 óskar öllum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is