Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristján Þór Kristjánsson – 20. október 2020

Það er Kristján Þór Kristjánsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kristján Þór fæddist 20. október 1967 og á því 53 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og er kvæntur Helgu Loftsdóttur. Komast má á facebooksíðu Kristjáns Þórs til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan


(53 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tsuneyuki „Tommy“ Nakajima, 20. október 1954 (66 ára); David Lynn, 20. október 1973 (47 ára); Veronica Zorzi, 20. október 1980 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Þórir Jakob Olgeirsson, 20. október 1991 (29 ára); Danielle Kang, 20. október 1992 (28 ára) og …… og ……..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is