Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn Reyr Sigurðsson – 22. október 2014

Afmæliskylfingur dagsins, 22. október 2014 er Kristinn Reyr Sigurðsson. Kristinn Reyr er fæddur 22. október 1996 og því 18 ára í dag. Kristinn Reyr er í Golfklúbbi Reykjavíkur.

Kristinn Reyr varð m.a. í 4. sæti á stigalista GSÍ 2013 í piltaflokki.  Hann spilaði m.a. á Eimskipsmótaröðinni í ár.

Kristinn Reyr er í afreksmannahóp GSÍ völdum af landsliðsþjálfaranum, Úlfari Jónssyni. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Kristinn Reyr Sigurðsson (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Adam Gee, 22. október 1980 (34 ára);  Peter Tomasulo, 22. október 1981 (33 ára);  Þórður Ingi Jónsson, 22. október 1988 (26 ára) ….. og …..

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem áttu afmæli í gær innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is