Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 23. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023

Það er Kristín Sigurbergsdóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kristín er fædd 23. mars 1963. Kristín er úr mikilli, landsfrægri golffjölskyldu úr Hafnarfirðinum, sem öll eru í Golfklúbbnum Keili. Af fjölmörgum afrekum fjölskyldu Kristínar á golfsviðinu nægir að nefna Kristín sigraði í 1. flokk á Íslandsmóti 35+, árið 2011 auk þess sem hún hefir tekið þátt í fjölda opinna móta og er alltaf meðal þeirra efstu. Kristín varð Íslandsmeistari í flokki 50+ með forgöf 2013.

Kristín er gift Bóas og eiga þau eins og áður segir tvö börn Axel og Jódísi. Komast má á facebooksíðu Kristínar til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:

Kristín Sigurbergsdóttir

Kristin Sigurbergsdóttir 23. mars 1963 (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Richard (Dick) Mast, 23. mars 1951 (72 ára); Vignir Freyr Andersen, 23. mars 1971 (52 ára); Heather Bowie Young, 23. mars 1975 (48 ára); Montford Johnson Wagner, 23. mars 1980 (43 ára); Birgir Mar Guðfinnsson, 23. mars 1982 (41 árs) GG; Evan Samuel Mickelson, 23. mars 2003 (20 ára – sonur Phil); Brynja Guðmundsdóttir ….. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is