Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Aðalsteinsdóttir – 22. desember 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Kristín Aðalsteinsdóttir. Kristín er fædd 22. desember 1972 og á því 42 ára afmæli í dag!!! Kristín er í Golfklúbbi Setbergs Kristín hefir spilað víða erlendis m.a. á Spáni  og í Golfclub Ozo í Lettlandi. Með fullu starfi hjá Hópbílum þjálfar Kristín 5. flokk stelpna í handbolta hjá ÍR.

Kristín er gift Val Benedikt Jónatanssyni og eiga þau 2 börn: Hrafnhildi Völu, 11 ára og Gísla Hrafn, sem varð 8 ára fyrir 3 dögum síðan.

Komast má á facebook síðu Kristínar til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:

Kristín Aðalsteinsdóttir (42 árs)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Charles Edward Sands, 22. desember 1865, Jan Stephenson, 22. desember 1951 (63 ára); Jason Barnes, 22. desember 1983 (31 árs); Yuta Ikeda, 22. desember 1985 (29 ára); Emilee Tayler, 22. desember 1989, (25 ára)

…. og ……

Halldóra Eyfjörð (54 ára)

Magnús Freyr Egilson (22 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is