Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kinga Korpak og Þórhildur Freysdóttir – 9. desember 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru Þórhildur Freysdóttir og  Kinga Korpak.

Þórhildur er fædd 9. desember 1954 og á því 60 ára stórafmæli í dag.  Komast má inn á facebook síðu Þórhildar hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið!

Þórhildur Freysdóttir · 60 ára

Kinga er fædd 9. desember 2003 og því 11 ára afmæli í dag. Hún er þrátt fyrir ungan aldur einn af afrekskylfingum GS og hefir spilað og staðið sig framúrskarandi vel á Íslandsbankamótaröðinni s.l. sumar. Þannig var  Kinga oft á sigurpalli þó hún hafi, eins og svo oft áður, verið að spila við sér miklu eldri stelpur.

Í ár varð Kinga þannig Íslandsmeistari í holukeppni í sínum aldursflokki 14 ára og yngri stelpna.  Hún sigraði einnig á 1. og  2. mótinu á Íslandsbankamótaröðinni og tók m.a. í fyrsta sinn þátt í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ.

Elsku Kinga, innilega til hamingju með daginn þinn!!!

Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Pauline «Polly» Whittier (fædd 9. desember 1876 – dáin 3. mars 1946); Oliver Tom Kite, 9. desember 1949 (65 ára); Wil Besseling, 9. desember 1985 (30 ára); Anaïs Maggetti, frá Sviss, 9. desember 1990 (24 ára) ….. og ……

Bergur Konráðsson · 48 ára

Björn Steinn Sveinsson · 57 ára

Þórleif Lúthersdóttir · 54 ára

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is