
Afmæliskylfingur dagsins: Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir – 24. september 2022
Það er Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir klúbbmeistari kvenna í GHR (Golfklúbbnum á Hellu) m.a. 2019, 2017, 2016 og 2014, sem er afmæliskylfingur dagsins. Katrín er fædd 24. september 1961 og á því 61 árs afmæli í dag. Katrín hefir gegnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir GHR og er núverandi ritari klúbbsins. Hún er gift formanni klúbbsins Óskari Pálssyni og á 3 börn þ.á.m. afrekskylfinginn Andra Má.
Á þeim tæp tíu árum sem Golf 1 hefir verið starfandi hefir verið tekin fjöldi viðtala, sem stendur um 600 víð íslenska sem erlenda kylfinga og var viðtal Golf 1 við Katrínu Björg eitt af því fyrsta og má sjá með því að SMELLA HÉR:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tommy Armour, (f. 24. september 1895- d. 11. september 1968); Margret Waage, 24. september 1955 (67 ára); W-7 módelið Lisa Hall, 24. september 1967 (55 ára) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Í aðalmyndaglugga: Katrín ásamt syni sínum Andra Má, þegar þau urðu klúbbmeistarar 2017
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023