Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2014 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kári Sölmundarson – 23. júní 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Kári Sölmundarson. Kári er fæddur 23. júní 1970 og er því 44 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Oddi. Kári hefir tekið þátt í ýmsum opnum mótum og staðið sig vel. T.a.m. var hann í 2. sæti á 20 ára afmælismóti Bakkakots 2011. Kári er kvæntur Hörpu Þórsdóttur.

Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan

Kári Sölmundarson  44 ára

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Ben Sayers, 23. júní 1856; Samuel McLaughlin Parks, Jr., 23. júní 1909; Lawson Little, 23. júní 1910; Flory Van Donck, 23. júní 1912 (102 ára afmæli); Colin Montgomerie, 23. júní 1963 (51 árs); David Howell, 23. júní 1975 (39 ára); Roberto Castro, 23. júní 1985 (29 ára)   ….. og ……

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Snaya. Snædis Thorleifsdottir

Arnór Harðarson  17 ára

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is