Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2013 | 21:15

Afmæliskylfingur dagsins: Kaisa Ruuttila ——– 14. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er finnski kylfingurinn Kaisa Ruuttila. Hún er fædd 14. október 1983 og á því 30 ára stórafmæli í dag.  Kaisa spilar á Evrópumótaröð kvenna. Hún er tíður gestur á listum yfir mest kynþokkafyllstu kylfinga í golfinu í dag.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jesse Carlyle „J.C.“ Snead, f. 14. október 1940 (73 ára);  Beth Daniel 14. október 1956 (57 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is