Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2016 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Justin Timberlake. Justin á afmæli 31. janúar 1981 og á því 35 ára stórafmæli í dag!!! Mótið með langa nafnið á PGA Tour er m.a. nefnt eftir Justin þ.e. Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open. Justin tekur þátt í fjölda Pro-Am móta fyrir góðgerðarmál og þykir af þotuliðinu í Hollywood einn frambærilegasti kylfingurinn.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Heiðar Jóhannsson, GBB, 31. janúar 1955 (61 árs); Michael Louis Allen, 31. janúar 1959 (57 ára);  Páll Heiðar (52 ára); Tina Miller 31. janúar 1983 (33 árs);  Ásgrímur Jóhannesson (27 ára); Sigurður Ingvi Rögnvaldsson GHD, (23 ára) ….. og ….. Magnús Árni Skúlason

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum sem og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga í dag, innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is