Afmæliskylfingur dagsins: José Maria Olazábal – 5. febrúar 2021
Afmæliskylfingur dagsins er José Maria Olazábal. Hann er fæddur 5. febrúar 1966 og því 55 ára í dag. Hann fæddist degi eftir að Real Golf Club de San Sebastian opnaði, þar sem hann býr í Hondarribia, Guipúzcoa á Spáni. Báðir foreldrar hans unnu á golfvellinum og 2 ára var hann farinn að slá golfbolta.
Olazábal gerðist atvinnumaður í golfi 1985 og á í beltinu 30 sigra sem slíkur; þar af 23 á Evróputúrnum og 6 á PGA. Af þessum sigrum eru tveir risamótssigrar en Olazábal vann Masters mótið tvívegis; 1994 og 1999.
Í seinni tíð er hann þekktari fyrir að vera fyrirliði í Rydernum, en hann stýrði liði Evrópu til sigurs yfir Bandaríkjamönnum 2012, þegar lið Evrópu sigraði 14 1/2 – 13 1/2.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jane Geddes, 5. febrúar 1960 (61 árs); Kevin Stadler, 5. febrúar 1960 (61 árs); Eythor Gudjonsson, 5. febrúar 1968 (53 ára); Rún Pétursdóttir, GR, 5. febrúar 1995 (26 ára); Dóri Tempó; Jökull Þh (57 ára) … og ….
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
