Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth ——- 27. júlí 2019

Afmæliskylfingur dagsins er sigurvegari Opna breska 2017 og tvöfaldur risamótsmeistari ársins 2015, Jordan Spieth. Spieth, sigurvegari Opna breskasigraði s.s. kunnugt er á Masters risamótinu í apríl 2015 og vann síðan Opna bandaríska. Jordan Spieth fæddist 27. júlí 1993 og á því 26 ára afmæli í dag. Ótrúlegur árangur þetta hjá ekki eldri kylfingi!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Örn Guðmundsson, 27. júlí 1952 (67 ára); Björk Klausen, 27. júlí 1954 (65 ára); Ólöf Jónsdóttir, 27. júlí 1970 (49 ára); Erla Björk Hjartardóttir, 27. júlí 1971 (48 ára); Stefán Fannar Sigurjónsson, 27. júlí 1972 (47 ára); Arnar Snær Jóhannsson, 27. júlí 1991 (28 ára); Emma Westin, 27. júlí 1991 (28 ára);  Golfklúbburinn Vestarr, 27. júlí 1995 (24 ára); Bjarni Þór Lúðvíksson, GR, 27. júlí 2004 (15 ára) og Kristján Gíslason.

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is