Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth —— 27. júlí 2017

Afmæliskylfingur dagsins er sigurvegari Opna breska í ár 2017 og tvöfaldur risamótsmeistari ársins 2015, Jordan Spieth. Spieth, sigurvegari Opna breska í ár, sigraði s.s. kunnugt er á Masters risamótinu í apríl 2015 og vann síðan Opna bandaríska. Jordan Spieth fæddist 27. júlí 1993 og er því 24 ára í dag. Ótrúlegur árangur þetta hjá ekki eldri kylfingi!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Örn Guðmundsson, 27. júlí 1952 (44 ára); Björk Klausen, 27. júlí 1954 (63 ára); Ólöf Jónsdóttir, 27. júlí 1970 (47 ára); Erla Björk Hjartardóttir, 27. júlí 1971 (46 ára); Stefán Fannar Sigurjónsson, 27. júlí 1972 (45 ára); Arnar Snær Jóhannsson, 27. júlí 1991 (26 ára); Golfklúbburinn Vestarr, 27. júlí 1995 (22 árs) og Kristján Gíslason.

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is