Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhannes Stefánsson og Guðrún Sverrisdóttir – 23. febrúar 2023

Afmæliskylfingur dagsins eru tveir: Jóhannes Stefánsson og  Guðrún Sverrisdóttir.

Jóhannes  er fæddur 23. febrúar 1973 og fagnar því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Jóhannesar til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan:

Jóhannes Stefánsson – Innilega til hamingju með 50 ára afmælið!!!

____________________

Guðrún er fædd 23. febrúar 1955 . Guðrún er í Golfklúbbi Borgarness. Hún varð m.a. klúbbmeistari GB í flokki 55-64 ára kvenna, árið 2016. Komast má á facebook síðu Guðrúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Guðrún Sverrisdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hlöðver Sigurgeir Guðnason, GKG 23. febrúar 1957 (66 ára) – hann fór m.a. holu í höggi á æfingahring á Víkurvelli hjá GMS í sveitakeppni 2. deildar eldri karla, fyrir uþb 11 árum, í ágúst 2012); Gylfi Sigfússon, GR og GV, 23. febrúar 1961 (62 ára); Michael Campell, 23. febrúar 1966 (57 ára); Steve Stricker, 23. febrúar 1967 (56 ára); Jóhannes Stefánsson, 23. febrúar 1973 (50 ára); Amelia Lewis, 23. febrúar 1991 (32 ára – spilar á LET); Bergur Einar, 23. febrúar 1997 (26 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is