Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir og Hermann Hauksson – 24. janúar 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, GO og Hermann Hauksson.

Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir fæddist 24. janúar 1962 og á því 60 ára merkisafmæli í dag.. Jóhanna Dröfn hefir átt fast sæti fyrir hönd Golfklúbbsins Odds í kvennasveit GO og hefir tekið þátt í mörgum sveitakeppnum GSÍ á undanförnum árum, var m.a. í sveit GO sem vann 2. deild kvenna 2005. Af mörgu er að taka í golfferli Jóhönnu Dröfn en hún hefir sigrað í mörgum opnum mótum vann m.a. ára-mót GO 2009. Jóhanna Dröfn hefir setið stjórn í GO.

Jóhanna er dóttir Kristins Sigurpáls Kristjánssonar og á eina dóttur Lilju Valþórsdóttur. Eins er Jóhanna Dröfn systir Dóru Kristínar í GHD.

Hermann Hauksson fæddist 24. janúar 1972 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Hermanns til þess að óksa honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

 

Hermann Hauksson – Innilega til hamingju með 50 ára stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jón H Karlsson, 24. janúar 1949 (73 ára); Kim Saiki Maloney, 24. janúar 1966 (56 ára); Hermann Hauksson, 24. janúar 1972 (50 ára); Aldilson da Silva, 24. janúar 1972 (vann í Sishen Golf Club á Vodafone Origins of Golf mótaröðinni á Sólskinstúrnum 2. september 2011 – 50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Jason Knutzon, 24. janúar 1976 (46 ára); Ingunn Einarsdottir, 24. janúar 1983 (39 ára); Antti Juhani Ahokas 24. janúar 1985 (37 ára); Anna Birna, 24. janúar 1987 (35 ára)…. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem eiga afmæli í dag innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is