Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 27. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jessica Korda —– 27. febrúar 2017

Afmæliskylfingur dagsins er bandarísk/tékkneski kylfingurinn Jessica Korda. Jessica er fædd 27. febrúar 1993 og á því 24 ára afmæli í dag!!! Jessica á sama afmælisdag og kólombíski kylfingurinn Mariajo Uribe, en hún á 27 ára afmæli í dag, þ.e. er fædd 27. febrúar 1990.

pp_Uribe_Mariajo_lg

Jessica komst í golffréttirnar í febrúar 2012 þegar hún vann sinn fyrsta sigur á LPGA: Women´s Australian Open, þegar hún stóð sig best í 6 kvenkylfinga umspili.

Jessica er dóttir tennisspilaranna Petr Korda og Regina Rajchrtová. Petr Korda vann m.a. Grand Slam í einliðaleik Australian Open 1998, þannig að Ástralía hefir reynst þeim feðginum góð!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Daðey Einarsdottir (57 ára); Sigmundur Guðmundsson (53 ára); Jóhann Björn Elíasson (46 ára); Jóhann Island Elíasson (46 ára); Gunnar Hallberg (45 ára); Dóra Birgis Art (39 ára); Húfur Sem Hjálpa (43 ára); DóraBirgis Myndlistakona Og Áhugaljósmyndari (39 ára); Föt Til Sölu (36 ára); Auður Björt Skúladóttir (26 ára) … og …

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is