Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2016 | 17:31

Afmæliskylfingur dagsins: Íris Katla Guðmundsdóttir – 10. febrúar 2016

Það er Íris Katla Guðmundsdóttir, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Íris Katla er fædd 10. febrúar 1992 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hún byrjaði í golfi 2006, þ.e. 14 ára og var byrjuð að keppa á unglingamótaröðinni árið eftir, 2007.

Meðal afreka Írisar Kötlu á golfsviðinu eru Íslandsmeistaratitlar með sveit GR í sveitakeppni GSÍ 2010 og 2011. Í kjölfarið tók Íris Katla þátt í Ladies Club Trophy keppninni, þ.e. Evrópumóti klúbba á Corfu ásamt Sunnu Víðisdóttur og Rún Pétursdóttur. Íris Katla hefir farið holu í höggi, en draumahöggið sló hún á Costa Ballena, 14. maí 2011. Íris Katla spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Queens, þaðan sem hún útskrifaðist í fyrra, 2015.

Íris Katla dvelur afmælisdaginn á Sri Lanka.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:Unnur Rikey Helgadottir, 10. febrúar 1949 (67 ára);  Herdís Sigurjónsdóttir, GK, 10. febrúar 1949 (67 ára);  Greg Norman, 10. febrúar 1955 (61 ára);  Katrín Danivalsdóttir, GK, 10. febrúar 1958 (58 ára); Mike Whan, framkvæmdastjóri LPGA, 10. febrúar 1965 (51 árs); Einar Lyng Hjaltason, 10. febrúar 1971 (45 ára);  Steinar Páll Ingólfsson, GK, 10. febrúar 1990 (26 ára); Alexis Thompson 10. febrúar 1995 (21 árs)…. og Setrið Setbergsskóladóttir,  10. febrúar 1993 (23 ára); Ragnar Már Ríkharðsson, GM, 10. febrúar 2000 (16 ára), Jón Otti, GO 10. febrúar 2000 (16 ára), og Kerrie Anderson

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is