Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingvi Rúnar Einarsson – 19. nóvember 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Ingvi Rúnar Einarsson. Ingvi Rúnar er fæddur 19. nóvember 1937 og á því 79 ára afmæli í dag. Ingvi Rúnar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og heldur úti samfélagssíðunni Kylfingar á Facebook. Ingvi Rúnar spilar mikið golf, gjarnan erlendis í golfferðum á ýmsum freistandi golfáfangastöðum og jafnt sumars sem um miðjan vetur á Íslandi. Eins er hann mjög góður púttari og hefir tekið þátt í mörgum púttmótum Golfklúbbsins Keilis, með góðum árangri. Ingvi Rúnar er jafnframt stofnandi golfklúbbsins Hraunborga Sjá með því að SMELLA HÉR:

Ingvi Rúnar er kvæntur, á 3 börn og fjölda barnabarna.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Ingvi Rúnar

Ingvi Rúnar

Ingvi Rúnar Einarsson (79 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kristján Bjarnar Þórarinssson 19. nóvember 1944 (72 ára); Azahara Muñoz 19. nóvember 1987 (29 ára); Kyle Stanley, 19. nóvember 1987 (29 ára); Brittany Altomare, 19. nóvember 1990 (26 ára – spilar á LPGA) ….. og ….. Juan Pablo Penuela Velez

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is