Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingveldur Ingvarsdóttir – 6. maí 2019

Það er Ingveldur Ingvarsdóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ingveldur er fædd 6. maí 1959 og á því merkisafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Af mörgum afrekum Ingveldar í golfíþróttinni er e.t.v. vert að geta þess að hún varð í 1. sæti í 4. flokk á Íslandsmóti 35+ í Öndverðarnesinu 2011.

Ingveldur er gift Benedikt Jónassyni.

Komast má á Facebooksíðu Ingveldar hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með daginn:

Ingveldur Ingvarsdóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Grier Jones, 6. maí 1946 (73 ára); Timothy Jay Simpson, 6. maí 1956 (63 ára); Scott Hood, (kanadískur kylfingur) 6. maí 1959 (60 ára merkisafmæli!!!); Helga Björg Marteinsdóttir, 6. maí 1963 (56 ára); Rebekka Kristjánsdóttir, 6. maí 1963 (56 ára); Mike Grob (kanadískur kylfingur); 6. maí 1964 (55 ára); Tim Simpson, 6. maí 1965 (54 ára); Dean Larsson, 6. maí 1972 (47 ára); Wendy Ward, 6. maí 1973 (46 ára); Rebecca Sörensen, 6. maí 1986 (33 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is