Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingvar Andri Magnússon og Hildur Rún Guðjónsdóttir —— 29. september 2014

Það er meistarinn í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013 og 2014, Ingvar Andri Magnússon, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins ásamt Hildi Rún Guðjónsdóttur, GK.

Hildur Rún er fædd 29. september 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag.  Komast má á facebook síðu Hildar Rún til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

Hildur Rún Guðjónsdóttir GK (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Ingvar Andri Magnússon, GR. Mynd: Facebooksíða Unglingaeinvígisins

Ingvar Andri Magnússon, GR. Mynd: Facebooksíða Unglingaeinvígisins

Ingvar Andri er fæddur 29. september 2000 og á því 14 ára afmæli í dag!!! Ingvar Andri er í  Golfklúbbi Reykjavíkur og að öðrum ólöstuðum einn alefnilegasti kylfingur landsins.  Hann hefir staðið sig  vel á Íslandsbankamótaröðinni í sumar.  Sjá má viðtal Golf 1 við Ingvar Andra með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu Ingvars Andra hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið ……

Ingvar Andri Magnússon, GR (Innilega til hamingju með 14 ára afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941  (73 ára);  Vicky Fergon, 29. september 1955 (59 ára) , sigraði  CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum tíma;  Kelly Robbins, 29. september 1969 (45 ára);  Tina Fischer, Bad Nauheim, Þýskalandi, 29. september 1970  (44 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is