Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Gunnar Geir Baldursson og Ingvar Andri Magnússon —— 29. september 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Gunnar Geir Baldursson og Ingvar Andri Magnússon.

Gunnar Geir er fæddur 29. september 1988 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Hann er í Nesklúbbnum (NK).  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

Gunnar Geir Baldursson – Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!!!

Ingvar Andri  er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og tók m.a. þátt í Evrópumóti áhugakylfinga í ár og verður annar fulltrúi Íslands á Olympíuleikum ungmenna, sem fram fara 6.-18. október n.k. í Buenos Aires í Argentínu.

Komast má á facebook síðu Ingvars Andra hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið ……

Ingvar Andri Magnússon, GKG (Innilega til hamingju með 18 ára afmælið!!! … og gangi þér vel í Argentínu!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941 (77 ára); Vicky Fergon, 29. september 1955 (63 ára) , sigraði CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum tíma; Svanhvít Friðþjófsdóttir, GV, 29. september 1965 (53 ára); Haukur Marinósson GOG, 29. september 1967 (51 árs); Kelly Robbins, 29. september 1969 (49 ára); Tina Fischer, Bad Nauheim, Þýskalandi, 29. september 1970 (48 ára); Gunnar Geir Baldursson NK, 29. september 1988 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!) Berglind Bjornsdottir GR, 29. september 1992 (26 ára); Hildur Rún Guðjónsdóttir, GK 29. september 1994 (24 ára) ….. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is