Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2015 | 18:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ingvar Andri Magnússon og Svanhvít Friðþjófsdóttir ———- 29. september 2015

Það er Íslandsmeistarinn í höggleik í drengjaflokki í ár (2015), Ingvar Andri Magnússon, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Þetta er svo sannarlega búið að vera ár Ingvars Andra á Íslandsbankamótaröðinni en Ingvar Andri sigraði í 4 mótum á þeirri mótaröð þ.e. fyrsta mótinu, og síðan 3.-4. mótunum í drengjaflokki og aðalmótinu þ.e. Íslandsmótinu í höggleik.

Jafnframt sigraði Ingvar Andri  í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013 og 2014. Og þá er aðeins fátt eitt talið þegar Ingvar Andri er annars vegar.

Komast má á facebook síðu Ingvars Andra hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið ……

Ingvar Andri Magnússon - Innilega til hamingju með 15 ára afmælið!!!

Ingvar Andri Magnússon, GR (Innilega til hamingju með 15 ára afmælið!!!)

Hinn afmæliskylfingur dagsins er Svanhvít Friðþjófsdóttir. Svanhvít er fædd 29. september 1965 og á því 50 ára stórafmæli í dag.  Svanhvít er í Golfklúbbi Vestmannaeyja. Komast má á facebook síðu Svanhvítar til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið hér að neðan:

1-a-Svanhvít

Svanhvít Friðþjófsdóttir (50 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941 (74 ára); Vicky Fergon, 29. september 1955 (60 ára stórafmæli!!!) , sigraði CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum tíma; Haukur Marinósson GOG, 29. september 1967 (48 ára; )Kelly Robbins, 29. september 1969 (46 ára); Tina Fischer, Bad Nauheim, Þýskalandi, 29. september 1970 (45 ára); Gunnar Geir Baldursson NK, 29. september 1988 (27 ára) Berglind Bjornsdottir GR, 29. september 1992 (23 ára); Hildur Rún Guðjónsdóttir, 29. september 1994 (21 árs) ….. og ….
Félagsvist Fyrir Einhleypa (50 ára stórafmæli)

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is