Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2020

Afmæliskylfingur dagsins er Ingunn Einarsdóttir. Hún fæddist 24. janúar 1983 og á því 37 ára afmæli í dag!!! Ingunn var einn af afrekskylfingum Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hún er menntaður viðskiptafræðingur og spilaði til margra ára fótbolta með Val. Ingunn hefir spilað á Eimskipsmótaröðinni og eins á mörgum opnum golfmótum.

Ingunn er í sambúð með Sigurði Má Davíðssyni og á eina dóttur.

Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ingunni til hamingju með afmælið hér að neðan

Ingunn Einarsdóttir – Innilega til hamingju með 37 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jón H Karlsson, 24. janúar 1949 (71 árs); Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, GO, 24. janúar 1962 (58 ára); Kim Saiki Maloney, 24. janúar 1966 (54 ára); Hermann Hauksson, 24. janúar 1972 (48 ára); Aldilson da Silva, 24. janúar 1972 (vann í Sishen Golf Club á Vodafone Origins of Golf mótaröðinni á Sólskinstúrnum 2. september 2011 – 48 ára); Jason Knutzon, 24. janúar 1976 (44 ára ); Ingvar Jónsson, GÞ, 24. janúar 1981 (39 ára); Antti Juhani Ahokas 24. janúar 1985 (35 ára); Anna Birna, 24. janúar 1987 (33 árs) …. og …. Gnúpur GK

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem eiga afmæli í dag innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is