
Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Ingunn Einarsdóttir. Hún fæddist 24. janúar 1983 og á því 35 ára afmæli í dag!!! Ingunn var einn af afrekskylfingum Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hún er menntaður viðskiptafræðingur og spilaði til margra ára fótbolta með Val. Ingunn hefir spilað á Eimskipsmótaröðinni og eins á mörgum opnum golfmótum.
Ingunn er í sambúð með Sigurði Má Davíðssyni og á eina dóttur.
Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ingunni til hamingju með afmælið hér að neðan
Ingunn Einarsdóttir – Innilega til hamingju með 35 ára afmælið!!!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jón H Karlsson, 24. janúar 1949 (69 ára); Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, GO, 24. janúar 1962 (56 ára); Kim Saiki Maloney, 24. janúar 1966 (52 ára); Hermann Hauksson, 24. janúar 1972 (46 ára); Aldilson da Silva, 24. janúar 1972 (vann í Sishen Golf Club á Vodafone Origins of Golf mótaröðinni á Sólskinstúrnum 2. september 2011 – 46 ára); Jason Knutzon, 24. janúar 1976 (42 ára ); Ingvar Jónsson, GÞ, 24. janúar 1981 (37 ára); Antti Juhani Ahokas 24. janúar 1985 (33 ára); Anna Birna, 24. janúar 1987 (31 árs) …. og …. Gnúpur GK
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem eiga afmæli í dag innilega til hamingju með daginn!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster
- janúar. 26. 2021 | 06:00 Þjálfarinn Claude Harmon III segir aðskilnaðinn við fv. nemanda sinn Brooks Koepka „hrikalegan“
- janúar. 25. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2020
- janúar. 25. 2021 | 05:00 Hvað var í sigurpoka Kim?