Indíana Auður Ólafsdóttir, sigurvegari á Volare 2012 átti lengsta teighöggið í mótinu 2013. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Indíana Auður Ólafsdóttir – 12. september 2022

Það er Indíana Auður Ólafsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Indíana Auður er fædd 12. september 1962 og á því 60 ára merkisafmæli í dag!!!! Indíana er í Golfklúbbnum Hamar á Dalvík (GHD). Hún sigraði m.a. í árlegu Opnu kvennamóti GHD 2017, en sjá má frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu Indu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Indíana Auður

Indíana Auður Ólafsdóttir (60 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dúfa Ólafsdóttir, 12. september 1945 (77 ára); Charles Henry „Chip” Beck, 12. september 1956 (66 árs); Salthúsið Grindavík 12. september 1961 (61 árs); Joyce Baffoe 12. september 1967 (55 ára); Guðlaug Ósk Óskarsdóttir, GA, 12. september 1968 (54 ára); Angel Cabrera, 12. september 1969 (53 ára); Shigeki Maruyama (丸山茂樹, Maruyama Shigeki; 12. september 1969 (53 ára); Aron Örn Viðarsson, 12. september 1988 (34 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is