Hulda Clara Gestsdóttir, GKG á móti á Eimskipsmótaröðinni (nú mótaröð þeirra bestu) á Hamarsvelli í Borgarnesi. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Hulda Clara ——— 5. mars 2023
Afmæliskylfingur dagsins er Hulda Clara Gestsdóttir. Hulda Clara er fædd 5. mars 2002 og er því 21 árs í dag. Hulda Clara er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Hún er m.a. stigameistari GSÍ í stelpuflokki 2016. Sjá má frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:
Árið 2017, sigraði Hulda Clara á 1. og 2. móti Íslandsbankamótaraðarinnar; eins spilaði hún á Eimskipsmóta-röðinni. Hulda Clara tók þar að auki þátt í EM yngri kylfinga og er í yngri landsliðshóp 2018 völdum af Jussi Pitkanen.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Hulda Clara Gestsdóttir, Íslandsmeistari kvenna í golfi 2021. Mynd: GSÍ
Hulda Clara Gestsdóttir – f. 5. mars 2002 (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Earl Dennison Woods (pabbi Tiger f. 5. mars 1932 – d. 3. maí 2006); Dale Douglass Wewoka, 5. mars 1936 (87 ára); Sigurður Sveinsson (Siggi Sveins), 5. mars 1959 (64 ára); Mats Lanner, 5. mars 1961 (62 ára); Bíbí Ísabella Ólafsdóttir, 5. mars 1952 (71 árs); Tracy L. Kerdyk, 5. mars 1966 (57 ára); Bengt Johan Axgren, 5. mars 1975 (48 ára); Sævar Ingi Sævarsson, 5. mars 1982 (41 árs); Elías Jónsson, 5. mars 1991 (32 ára); Sue Kim, 5. mars 1991 (32 ára); Salvör Jónsdóttir Ísberg, NK, 5. mars 1997 (26 árs) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
