Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2017

Það er Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hólmfríður Lillý er fædd 11. maí 1962 og á því 55 ára afmæli í dag!!!

Hólmfríður Lillý er móðir Ómars Sigurvins, Péturs Freys, sem stundaði nám og spilaði golf með golfliði Nicholls State í Louisiana og Rún, sem varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik í flokki telpna 15-16 ára árið 2011. Fjölskyldan er öll í Golfklúbbi Reykjavíkur.

Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir. Mynd: Í einkaeigu.

 

Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir  (55 ára – Innilega til hamingju með afmælið! )

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðalheiður Jörgensen GR , 11. maí 1956 (61 árs);  Blair Piercy, (kanadískur kylfingur) 11. maí 1963 (54 ára); Andrew Bonhomme (ástralskur kylfingur), 11. maí 1972 (45 ára); Michael Jancey „Briny“ Baird, 11. maí 1972 (45 ára); Ji Hyun Suh, 11. maí 1975 (41 árs); Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir, GK , 11. maí 1975 (42 ára);  Juvic Pagunsan, 11. maí 1978 (39 ára); Ashleigh Ann Simon, 11. maí 1989 (28 ára); Tanni Ferðaþjónusta (24 ára)….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is