Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hlynur Geir Hjartarson – 31. október 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Hlynur Geir Hjartarson. Hlynur er fæddur 31. október 1976 og á því 40 ára merkisafmæli í dag. Hann er framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss (GOS). Hlynur hefir verið fararstjóri í golfferðum Heimsferða en hann er PGA golfkennari frá Golfkennaraskóla PGA. Hlynur Geir er klúbbmeistari Golfklúbbs Selfoss 2012-2016 Hann á glæsilegt vallarmet á Svarfhólsvelli 62 högg!!! Hlynur Geir er kvæntur Gunnhildi Katrínu Hjaltadóttur en þau eiga 3 börn. Sjá má eldraviðtal Golf 1 við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið!

1-a-hlynur

Hlynur Geir Hjartarson – 40 ára Innilega til hamingju með stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Rives McBee, 31. október 1938 (78 ára); Guðjon Stefansson, 31. október 1947 (69 ára);  Toru Nakamura (中村 通Nakamura Tōru 31. október 1950) (66 ára);  Snæbjørn Bjornsson Birnir, 31. október 1953 (63 ára);  Alda Kolbrún Haraldsdóttir, 31. október 1960 (56 ára); Mardan Mamat, 31. október 1967 frá Singapore (49 ára); Krisztina Batta, ungverskur meistari í golfi, 31. október 1968 (48 ára);  Mark Wilson, 31. október 1974 (42 ára); Jim Renner, 31. október 1983 (33 ára); Hafsteinn Svanberg Sigurðarson, 31. október 1999 (17 ára) …… og …. Herbergi Fjögurhundruðogátta Netleikhús

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is