Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023

Það er Hlín Torfadóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hlín er fædd 14. apríl 1945 og á því 78 ára afmæli í dag. Hún er félagi í Golfklúbbnum Hamar á Dalvík (GHD). Hlín hefir tekið þátt í fjölmörgum opnum mótum um allt land og gengur yfirleitt vel. Hlín er virk í kórastarfi á Dalvík m.a. stjórnandi kirkjukórs Dalvíkurkirkju og Stærri-Árskógskirkju.

Hér má komast á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hlín til hamingju með afmælið:

1-a-hlin
Hlin Torfadottir – Innilega til hamingju með afmælið!

Aðrir frægir kylfingar: Roberto di Vicenzo, f. 14. apríl 1923 – d. 1. júní 2017  (argentínskur – hefði orðið 100 ára í dag); Dana C. Quigley, 14. apríl 1947 (76 ára); Valgeir Þórisson, 14. apríl 1961 (62 ára);  Meg Mallon (fyrirliði Bandaríkjanna í Solheim Cup 2013), 14. apríl 1963 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Spænski stórkylfingurinn Hugo Maldonado, 14. apríl 1966 (57 ára); Simon Wakefield, 14. apríl 1974 (spilar á European Tour – 49 ára); David Horsey, 14. apríl 1985 (38 ára) … og ….. Basicplus Mosfellsbæ Tískuverslun,  14. apríl 1979 (44 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is