Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Hjörtur Þór Unnarsson. Hjörtur fæddist 4. ágúst 1966 og á því 50 ára stórafmæli í dag! Hann er í Golfklúbbi Reykjavík og byrjaði afmælisdaginn á því að spila einn golfhring með uppáhaldsfélögum sínum í þessu líka gull-fallega veðri, sem búið er að vera sunnanlands.  Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Hjört með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu Hjartar til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan:

Hjörtur Þór Unnarsson, GR. Mynd: Golf 1

Hjörtur Þór Unnarsson (4. ágúst 2016 – Innilega til hamingju með merkisafmælið!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Janet Coles, 4. ágúst 1954 (62 ára); Deedee Lasker, (spilaði hér áður fyrr á LPGA) 4. ágúst 1959 (57 ára); Þorgeir Sæberg, 4. ágúst 1961 (55 ára);

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is