Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 12. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Lárus Harðarson – 12. febrúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Hjörtur Lárus Harðarson. Hjörtur Lárus er fæddur 12.febrúar 1951 og er því 65 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hjörtur á 3 dætur: Steinunni Ólöfu, Erlu Björk og Hjördísi Láru.

Hjörtur er margfaldur afi m.a. afi Íslandsmeistara í höggleik drengja 2013 og Íslandsmeistara í höggleik í strákaflokki 2012, Hennings Darra Þórðarsonar.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið

hjortur lárus harðarson

Hjörtur Lárus Harðarson (65 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gudrun Larusdottir (74 ára); Desmond John Smyth, 12. febrúar 1953 (63 árs); Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK, 12. febrúar 1962 (54 ára);  Tadahiro Takayama, 12. febrúar 1978 (38 ára); Shiv Kapur, 12. febrúar 1982 (34 ára); Lejan Lewthwaite, 12. febrúar 1991 (25 ára); Regan De Guzman (filipseyskur kylfingur á LPGA – 24 ára) ….. og…..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is