Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir, María Egilsdóttir og Andrea Ýr Ásmundsdóttir og – 1. febrúar 2022
Afmæliskylfingar dagsins eru þrír Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR., María Egilsdóttir og Andrea Ýr Ásmundsdóttir.
Hildur Kristín fæddist 1. febrúar 1992 og á því 30 ára stórafmæli í dag.
Hildur Kristín byrjaði að spila golf 15 ára og er því aðeins búin að spila golf í 15 ár. Hún var fljót að koma forgjöfinni niður í einsstafs töluog spilaði m.a. á Eimskipsmótaröðinni sumarið 2011 og 2012.
Hildur varð m.a. í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni; hún sigraði 1. flokk á meistaramóti GR, 2009 og sigraði bæði sveitakeppni 1. deildar kvenna kvenna og stúkna 18 ára og yngri 2010. Eins var hún í sveit GR kvenna, sem urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ, 2011.
Hildur Kristín er dóttir Ragnhildar Sigurðardóttur, GR, golfdrottningar og dótturdóttir Sigurðar dýralæknis Sigurðssonar, sem er úr hinum frábæra´ 61 árgangi úr MA. Eins á Hildur eina systur, Lilju.
María Egilsdóttir er fædd 1. febrúar 1997 og á því 25 ára stórafmæli.
Andrea Ýr Ásmundsdóttir er fædd 1. febrúar 2002 og fagnar því 20 ára stórafmæli. Hún er í GA.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Debbie Austin, 1. febrúar 1948 (74 ára) og Jimmy Lee Thorpe, 1. febrúar 1949 (73 ára); Vilhjalmur Hjalmarsson, 1. febrúar 1967 (55 ára). Annþór Kristján Karlsson, 1. febrúar 1976 (46 ára); Júlíus Freyr Valgeirsson, 1. febrúar 1978 (44 ára); Therese O´Hara, 1. febrúar 1988 (34 ára); Hildur Kristín Þorvarðardóttir, 1. febrúar 1992 (30 ára); María Egilsdóttir, 1. febrúar 1997 (25 ára); Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, 1. febrúar 2002 (20 ára) … og …
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
