Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2012 | 12:30

Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR. Hildur Kristín fæddist 1. febrúar 1992 og á því 20 ára stórafmæli í dag.
Hildur Kristín byrjaði að spila golf 15 ára og er því aðeins búin að spila golf í 5 ár. Engu að síður er hún komin með 6,2 í forgjöf og spilaði á Eimskipsmótaröðinni sumarið 2011.
Mæðgurnar, Ragnhildur og Hildur Kristín á
Símamóti Eimskipsmótaraðarinnar 24. júní 2011.
Mynd: Golf 1 
Á stuttum golfferli hefir hún m.a. lent í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni; hún sigraði 1. flokk á meistaramóti GR, 2009 og sigraði bæði sveitakeppni 1. deildar kvenna kvenna og stúkna 18 ára og yngri 2010. Eins var hún í sveit GR kvenna, sem urðu Íslandsmeistarar  í sveitakeppni GSÍ, 2011.
Hildur Kristín er dóttir Ragnhildar Sigurðardóttur, GR, golfdrottningar og dótturdóttir Sigurðar dýralæknis Sigurðssonar, sem er úr hinum frábæra´ 61 árgangi úr MA. Eins á Hildur eina systur, Lilju.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Debbie Austin, 1. febrúar 1948 (64 ára) og  Jimmy Lee Thorpe, 1. febrúar 1949 (63 ára) og …

 F. 1. febrúar 1976 (36 ára)
F. 1. febrúar 1978 (34 ára)
F. 1. febrúar 1997 (15 ára)

F. 1. febrúar 1967 (45 ára).
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is