Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2013 | 14:10

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Rún Guðmundsdóttir – 31. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Rún Guðmundsdóttir, GL. Helga Rún er fædd 31. maí 1970 og því 43 ára í dag. Hún er í kvennanefnd Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Mánudaginn 28. maí, 2012 tók afmæliskylfingurinn þátt í Hvítasunnumóti Guðmundar B Hannah á Garðavelli, á Akranesi og varð í verðlaunasæti þ.e. í 2. sæti af  96 þátttakendum með 41 glæsilegan punkt!

Nýlegt viðtal við Helgu Rún hefir birtst á Golf1, sem sjá má með því að  SMELLA HÉR: 

Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér

 

Árni Sófusson (67 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is