Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Jóhannsdóttir – 26. október 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Jóhannsdóttir. Helga er fædd 26. október 1963 og á því 56 ára afmæli í dag!!!! Helga er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Helga hefir verið virk í kvennastarfi Keilis og hefir tekið þátt í mörgum opnum golfmótum hérlendis með góðum árangri og spilar golf hér á landi sem erlendis.

Helga er gift Aðalsteini Svavarssyni og á tvær dætur: Írisi Ösp og Agnesi Ýr. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Helga Jóhannsdóttir

Helga Jóhannsdóttir; GK (56 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mark Bucek, f. 26. október 1961 (58 ára); Elísabet Sigurbjarnadóttir 26. október 1965 (54 ára); David Miley f. 26. október 1966 (53 ára); Anton Ingi Þorsteinsson, GA, 26. október 1975 (44 ára); Melodie Bourdy, 26. október 1986 (33 ára); Davíð Skarphéðinsson GK, 26. október 1987 (32 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is