Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Harpa Ævarrsdóttir – 16. júní 2017

Það er Harpa Ævarrsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Harpa er fædd 16. júní 1967 og á því 50 ára merkisafmæli í dag. Hún var lengi vel fulltrúi sýslumannsins á Akureyri og var dugleg hér áður að draga fyrir son sinn Ævarr Frey, í mótum Íslandsbanka- og Eimskipsmótaraðarinnar.

Komast má á facebook síðu Hörpu til þess að óska honum til hamingju með daginn

Afmæliskylfingurinn ásamt syni sínum Ævarri Frey, GA. Mynd: Golf 1

Harpa Ævarrsdóttir  – 50 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Old Tom Morris, 16. júní 1821; Dagrún, 16. júní 1964 (53 ára); Harpa Ævarrsdóttir, 16. júní 1967 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Phil Mickelson, 16. júní 1970 (47 ára);  Sigurþór Ingólfsson, 16. júní 1970 (47 ára); Michael Kahn, 16. júní 1972 (45 ára) ….. og ….. Hraunsnef Sveitahotel

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is